Félagsliði óskast í liðveislu

Created with Sketch.

Félagsliði óskast í liðveislu

Hér fyrir neðan kemur auglýsingin frá henni
———

Unnur heiti ég og er 47 ára. Ég er menntaður kennari, blaðamaður og með diploma í fötlunarfræði. Ég er öryrki, þar sem ég fæ 1-3 flog á dag auk þess sem ég er með geðhvörf I. Ég er hress, opin, til í flest en vantar einhvern til að styðja mig í félagsstarfi og veita mér félagsskap. Mig vantar það sem kallast liðveislu en í því felst vinna í 20-25 tíma á mánuði eða um 6 tímar á viku. Við getum farið í sund, leikfimi, leikhús, listasýningar, kaffihús eða bíó, allt eftir andanum og þrekinu hverju sinni. Vinnutími er mjög sveigjanlegur, greiddur er útlagður kostnaður og kílómetragjald upp að vissu hámarki. Endilega hafðu samband hafir þú áhuga og vilt fá frekari upplýsingar. Síminn hjá mér er 863 3574 og svo geturðu sent mér persónuleg skilaboð á facebook en þar er nafnið mitt Unnur Hrefna Jóhannsdóttir. Hlakka til að heyra frá þér.

Bestu kveðjur, Unnur

%d bloggers like this: