Framlengdur skráningartími

Created with Sketch.

Framlengdur skráningartími

Þann 13 apríl næst komandi verður aðalfundur Félag íslenskra félagsliða haldinn á Grettisgötu 89, Reykjavík. Fyrirhugað er að hafa fjarfundarbunað á eftirtöldum stöðum Akureyri, Sauðárkrók, Egilsstöðum, Höfn, Selfossi og Snæfellsbæ. Stjórn félagsins tók þá ákvörðun að félagsmenn sem ætla sér að sitja aðalfundinn í fjarfundarbúnaði þurfi að skrá sig í gegnum e-mailið felagslidar@felagslidar.is með upplýsingar  um nafn, síma og hvar er fyrirhugað að setja fundinn fyrir 06. apríl  n.k. Einnig  vantar okkur tengilið til að koma fundargögnum  á staðinn.

Einnig viljum við minna félagsmenn á að gefa kost á sér til formanns, varaformanns, ritari, gjaldkeri , meðstjórnanda x 3, og varastjórn x 2. Við hvetjum félagsmenn sem eru úti á landi að gefa kost á sér og einnig hvetjum við karlmenn slíkt hið sama.

Aðalfundurinn verður auglýstur síðar í fréttablaðinu, heimasíðu félagsins og facebook.

%d bloggers like this: