Fagnámskeið í boði hjá MÍMIR Haust 2020

Created with Sketch.

Fagnámskeið í boði hjá MÍMIR Haust 2020

Kennslutímabil: 9. september – 9. desember    

Kennsludagar: Miðvikudagar kl. 13:00 – 16:00

Náminu er meðal annars ætlað að auka innsæi í þarfir og aðstæður einstaklinga með mismunandi skerðingar sem leiða til fötlunar. Réttindagæsla fatlaðra er kynnt og hlutverk og þjónusta hagsmunafélaga. Farið er í vettvangsferðir og unnið með þætti eins og skipulögð vinnubrögð og sjónrænt dagskipulag. Kynntar verða leiðir til að styðja við og auka félagshæfni þjónustunotandans. Nemendur fá fræðslu um notkun rofabúnaðar og tölva. Þjónustuformið NPA verður kynnt af notanda þjónustunnar.

Námið er ætlað félagsliðum og er félagsmönnum Eflingar að kostnaðarlausu.

Kennsla fer fram hjá Mími símenntun, Höfðabakka 9. Skráning er hjá Eflingu stéttarfélagi í síma 510 7500 eða á netfangið efling@efling.is

Námskeiðið er kennt á íslensku.

%d bloggers like this: