Málþing Félags íslenskra félagsliða 15. nóv. nk. – skráning hafin!

Created with Sketch.

Málþing Félags íslenskra félagsliða 15. nóv. nk. – skráning hafin!

Föstudaginn 15. nóvember stendur FÍF fyrir málþingi með yfirskriftinni Félagsliðar eru hin nýja starfsstétt velferðarkerfisins. Málþingið hefst kl. 10 og stendur til kl. 17 og verður á Grettisgötu 89 (í BSRB húsinu), Reykjavík.

Á málþinginu verður meðal annars fjallað um sýn atvinnurekandans á störf félagsliða, siðferðileg álitamál verða krufin en einnig verður umfjöllun um kjaramál á dagskránni. Drög að dagskrá fylgja hér að neðan.

Skráning er hafin, en síðasti skráningardagur er 8. nóvember.

SKRÁ MIG Á MÁLÞING!

Skráningargjald er kr. 2.000 (þarf að greiðast í reiðufé).
Námsmannaafsláttur er kr. 1.000 (þarf að greiðast í reiðufé).
DAGSKRÁ

Kl. 9:30-10:00  Skráning
Kl. 10:00-10:15
  Setning  og ávarp málþingsins.
– Salvör Jónsdóttir
, formaður FÍF,  og
– Logi Bergmann Eiðsson,
sjónvarpsfréttamaður.
Kl. 10:15- 10:30 Sýn sveitarfélaga á þróun þjónustu við fatlaða og aldraða með sérstöku tilliti til þeirra sem þurfa aðstoð við daglegt líf.
– Tryggvi Þórhallsson, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Kl. 10:30- 10:45 Hvert er hlutverk félagsliða í þjónustu borgarinnar.
– Lóa Birna Birgisdóttir
, mannauðsstjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Kl. 10:45-11:00  Kaffi
Kl. 11:00-11:25  Félagsliðar – umhverfi  kjaramála á opinberum vinnumarkaði
– Guðrún Halldóra Sveinsdóttir, verkefnastjóri kjarasviðs SFR fjallar um mismunandi framgangs- og launaröðunarkerfi eftir því hvort um starf hjá ríki eða sveitarfélögum er að ræða. Einnig verður fjallað um hvernig er auglýst og ráðið í störf á fagsviði félagsliða.
Kl. 11:25-11:50  Félagsliðar í 10 ár – hver er staðan nú og hvaða áskoranir eru framundan?
– Harpa Ólafsdóttir, forstöðumaður kjaramálsviðs Eflingar-stéttarfélags fjallar um hvernig starfsvettvangur félagsliða hefur þróast og hvert hann stefnir.
Kl. 11:50-12:05  Fyrirspurnir um umhverfi kjaramála, starfsvettvang og áskoranir framundan.
Kl. 12:05-12:15  Kynning á viðbótarnámi fyrir félagsliða.
– Reynslusaga frá Rebekku Alvarsdóttur, félagsliða og nema í viðbótarnámi.
Kl. 12:15-13:00  Hádegismatur
Kl. 13:00-14:30  Vangaveltur félagsliða
Kl. 14:30-14:45  Kaffi
Kl. 14:45-15:45  Siðferði – Hvað ef að starfsmaður stígur á “línuna” …
– Þór Þórarinsson
frá Velferðarráðuneytinu.
Kl. 15:45-16:00
 Löggilding – Umsóknarferlið og staðan nú?
– Salvör Jónsdóttir
, formaður FÍF og
– Þórarinn Eyfjörð
, framkvæmdastjóri SFR.
Kl. 16:00-16:15
 Sýn notenda á starf félagsliðans
– Björgvin Björgvinsson.
Kl. 16:15-17:00  Málþingslok og léttar veitingar

Málþingsstjórar eru:
Guðrún Ögmundsdóttir,
félagsráðgjafi og fyrrverandi alþingismaður.
Þórkatla Þórisdóttir, kennari og kennslustjóri Félagsliðabrautar BHS.

 

Skrá athugasemd

%d bloggers like this: