Hrafnista Sléttuvegi óskar eftir Félagsliðum
Hrafnista Sléttuvegi – dagdvöl
Hrafnista Sléttuvegi óskar eftir að ráða Félagsliða í dagdvöl. Markmið dagdvalar er að viðhalda sjálfstæði einstaklingsins og rjúfa félagslega einangrun aldraðra. Þrátíu einstaklingar sækja deildina daglega.
Starfshlutfall er samkomulagsatriði.
Helstu verkefni
- Hafa umsjón með virkni, hreyfingu og hópastarfi
- Skipulag á almennri starfsemi
- Samskipti við aðstandendur
- Skipulag verkefna eftir þörfum þjónustuþega
Hæfni og þekking
- Menntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af heilabilunarsjúkdómum er kostur
- Stefnumiðuð hugsun.
- Frumkvæði og metnaður
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum.
- Áhugi á tómstunda- og félagsstarf
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bryndís Rut Logadóttir, deildarstjóri dagdvalar, í síma 693-9593 eða bryndis.logadottir@hrafnista.is.