Fjarfundarbúnaður og stjórnarkjör
Þann 13 apríl næst komandi verður aðalfundur Félag íslenskra félagsliða haldinn á Grettisgötu 89, Reykjavík. Fyrirhugað er að hafa fjarfundarbunað á eftirtöldum stöðum Akureyri, Sauðárkrók, Egilsstöðum, Höfn, Selfossi og Snæfellsbæ. Stjórn félagsins tók þá ákvörðun að félagsmenn sem ætla sér að sitja aðalfundinn í fjarfundarbúnaði þurfi að skrá sig í gegnum e-mailið felagslidar@felagslidar.is með upplýsingar um nafn, síma og hvar er fyrirhugað að setja fundinn fyrir 29. mars n.k
Einnig viljum við minna félagsmenn á að gefa kost á sér til formanns, varaformanns, ritari, gjaldkeri , meðstjórnanda x 3, og varastjórn x 2. Við hvetjum félagsmenn sem eru úti á landi að gefa kost á sér og einnig hvetjum við karlmenn slíkt hið sama.
Aðalfundurinn verður auglýstur síðar í fréttablaðinu, heimasíðu félagsins og fasebook.