Félagið hefur gefið út félagsskírteini til félagsmanna
Stjórn félagsins ákvað að gefa út félagsskírteini til félagsmanna sinna sem nýtist sem afsláttarkort á ýmsum stöðum um land allt.
Félagið fór í samstarf við íslandskortið sem sér um alla afslætti kortsins.
Nýir félagsmenn fá afsláttarkortin sín afhend með dagbókinni sinni í haust.
Íslandskortið er öflug lausn sem opnar dyr að íslenskri ferðamannaþjónustu ásamt þjónustum eins og almenningssamgöngum, jarðgöngum, sundlaugum, söfnum tjaldstæðum, sturtum, þvottavélum og fleira. Íslandskortið auðveldar aðilum í ferðamannaþjónustu að bjóða upp á betri þjónustu. Frímann afsláttur hefur veitt um 150,000 manns ýmis afsláttarkjör og verða þau nú virk fyrir korthafa Íslandskortsins.
Hægt er að lesa allt um afsláttarkortið inn á ÍSLANDSKORTIÐ