Desemberuppbót
![](https://i0.wp.com/felagslidar.is/wp-content/uploads/2020/11/desemberuppbot.jpg?fit=700%2C400&ssl=1)
Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga.
Full desemberuppbót árið 2020:
– 94.000 kr. hjá þeim sem vinna hjá ríki og SFV
– 118.750. kr. hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum.
– 118.750. kr. hjá þeim sem vinna hjá skálatúni
– 103.100. kr. hjá þeim sem vinna hjá Ás styrktarfélagi
– 103.100 kr. hjá þeim sem vinna hjá Reykjavíkurborg